lørdag den 27. oktober 2007

seinasti dagurinn!!

ja nuna er seinasti dagurinn upprunninn. Og va hvad thad er skritid ad vera allt i einu a leid heim. Thetta er buinn ad vera svo magnadur timi. Vid erum buin ad hitta svo mikid frabæru folki, sja magnada stadi og upplifa hluti sem madur gerir ekki annarsstadar.

Vid erum buin ad fara i rikustu hverfin med ibudum og husum sem madur hreinlega vissi ekki ad væri til yfir i fatækustu hverfin thar sem husin eru ekki mikid meir en hreysi og madur a mjog bagt med ad trua ad seu ibudarhæf.

Vid hofum upplifad ad allir vilja allt fyrir mann gera. Stundum er lofad of miklu og stundum of seint en alltaf er jakvædnin i fararbroddi.

Fjolskyldan sem eg tok upp sendi sem mer mail, eftir upptokur sem hljodadi svo:
hello janus
we were very happy with you, and enjoying too much yasterday. and this is your house and you are welcome any time.
with my best wishies
Mohamed


Vid hofum eignast mikid af vinum og eigum heimbod alstadar i midausturlondum.

Tinna kom i heimsokn til min og heilladi alla upp ur skonum og grunar mig ad folk komi til med ad sakna hennar meir en min...Vid attum frabærar stundir og ætlum okkur ad koma aftur.

Eg held ad thad seu ekki til betri medmæli med einum stad en ad madur vilji koma thangad aftur.

Janus.

søndag den 21. oktober 2007











upptokum lokid

Jaeja ja
Tha er minum upptokum lokid og er thad nokkud gott. Alltaf gaman ad vera buinn ad einhverju...eda svona nanast. Tho er mikid verk fyrir hondum. Vid tekur er heim er komid klippi og eftirvinna fram ad jolum, sem aetti svo ad enda i frumsyningu a cairo myndum bekkjarins. Myndirnar eru thrjar. Eg gerdi mynd um listakonu sem gerir verk a vegg folks sem byr a thaki hahysis. Mette er ad fara taka upp a morgunn og hinn mynd um ljonatemjara og ljonin hans 60 og Marie er ad fara ad gera mynd um lif unglingsstelpna i Eyptalandi.

Upptokur voru i gaer hja mer og gengu ansi brosott. Hellingur af graejum gleymdust semgerdi thad ad verkum ad tokum seinkadi sem orsakadi ad lokum thad ad listakonan nadiekki ad klara verkid sitt til fullnustu. Graejurnar sem gleymdust eda voru i olagi voru smahlutir eins og batteri, feitur jackplugg, virkandi thrifotur og fleira. Allt veldur thetta seinkunum thegar tharf ad fara i gegnum halfa kairo til ad na i thad. Svo thegar madur tekur upp utanhuss og tharfnast solarljossins getur madur ekki annad en ad stoppa upptokur thegar thess nytur ekki lengur vid. Audvitad var eg hundfull eftir ad upptokum lauk yfir thvi ad folk getur ekki verid nogu pottthett ad muna eftir batterium og micrafonum, og ad madur hafi borgad dyrum domum fyrir leigu a graejum sem ekki virkudu.Madur getur kennd ollum um slikt og aest sig og oskrad og barid i bord og skilid folk eftir i molum og skithraett...thad getur verid orlitid fullnaegjandi. En thad breytir thvi samt ekki ad thad efni sem sit nu med i hondunum er ekki eitthvad sem eg hafdi i huga. Svo hvad gerir madur tha? Madur reynir ad laera af reynslunni og koma i veg fyrir thad slikt endurtaki sig. Madur skodar thad sem midur fer og thad sem reyndist gott. Thad er tho svakalega litil huggun i nuinu, thegar madur er full yfir nyyfirstodnum upptokum,
ad segja vid sjalfan sig ad thetta se reynsla sem madur getur nytt ser seinna. En thad er thad eina sem ad madur getur gert. Sumir hlutir eru ovidradanlegir og margir eru thad einmitt ekki....og hvad aetla eg ad gera i thvi.

Og vitid thid hvad eg er ad gera i thvi. Eg er i thessum toludum ordum ad tala nidur
fjarutlat vegna taekjakaupa og leigu nidur um helming. Og svo naest aetla eg, personlega ad sja til thess ad allar thaer graejur sem eg tharf ad nota vid upptokur seu med i for og thaer virki. Tvi thad er einmitt eg sem tharf ad sitja med efnid og klippa thad i margar vikur og thad er einmitt mitt nafn sem stendur a eftir Instruktor:.
Og enn frekar tha er thad einmitt eg sem klara skolan eftir taep 2 ar og tharf ad standa a eigin fotum, gera vonandi myndir sem skipta adra mali en mig og jafnvel lifa af thvi.

Va thetta var aldeilis sjalfsskodun en mer lidur betur eftir ad hafa dompad thessu ollu a ykkur. Eg dompadi thessu a Tinnu og mommu og flesta her i gaer svo eftir nokkur skifti fer eg ad getad litid a thetta ur fjarlaegd, nanast hlegid ad thessu...kannski ekki alveg strax og sed lausnir frekar en vandamal.

.....ja fjandans reynslan.

Eftir viku verd eg a leid i breidthotunni til koben og verdur tha 6 vikna torn her lokid.Timinn hefur lidid hratt en i sannleika sagt finnst mer eg hafa verid her lengi. Samt alls ekki of lengi. Thad verdur barasta gott ad komast ut ur hotelherberginu i sina eigin ibud thar sem Tinna min er. Eg aetla tho ekki ad fara telja nidur thvi thad er margt skemmtilegt eftir. Stelpurnar eru ad byrja a sinum upptokum sem thydir thad ad eg er ad fara sirkus a morgunn og hinn ad taka upp ljon og temjara theirra. Daginn eftir er eg liklegast ad fara taka upp i ameriska haskolanum her med Marie thar sem hun raedir vid ungar stelpur um theirra
lif. Svo er eg ad fara a opnun listasyningar ofan i midbae a morgunn og naestu daga ad kvedja tha sem voru i myndinni minni.

Ja fjarinn hafi thad madur er ju i Kairo
Nog ad sinni Janni.

lørdag den 20. oktober 2007

torsdag den 18. oktober 2007

nytt ad fretta...nog ad gera

hallo oll somul
Nu er Tinna min farin og eg einn eftir i kotinu, og thad er ad fara ad lida ad minni production. Eg get hreinlega ekki bedid. Thad er svo magnad hvernig thetta allt virkar. Madur er buinn ad vera ad stressa sig yfir thviad vera ekki buinn ad finna folk i myndina...en hvad gerist svo. Daginn eftirlanga friinu likur (feastid i lok fostunnar) for allt af stad eg fann listamanninn sem eg hef verid ad leita ad og svo fann eg fjolskyldu sembyr upp a thaki og vill lata mala hja ser vegg, a einum degi. Myndin min verdur umfjolskyldu sem faer listamann til ad mala hja ser vegg a svolunum hjaser. Svo aetla eg ad fylgjast med hvort ad fjolskyldan kunnu ad metathad sem listamadurinn geri. Og hvort ad listamadurinn kunni ad metathaer skodanir sem fjolskyldan kemur med. hvernig leysa thau, thau agreiningsmal sem koma upp? Hversu mikils metur hinn almenni borgarilist.
Thad var frabaert ad fa Tinnu i heimsokn. Vid hofdum thad svaka gott ogdekrudum vid okkur. Soludum okkur a Marriott hotelinu, Pyramidarnir adsjalfsogdu, hittum helling af folki sem hjalpadi okkur i leitinni adfjolskyldu og listamanni, bordum godan mat og vondann, viltumst, vorumferdamenn og stundum reyndum vid ad vera eins og innfaeddir og hangakaffihusum.
Seinasta kvoldid forum vid a sudurkoreiskan veitingarstad thar sem vidbordum nokkud sterkan mat sem for alveg med meltingarfloruna og vorum naestu tveir dagar ekki til eftirbreytni.....djisus. En nu er allt komid i lag og allt virkar sem skildi. Ekkert hreyfdi vid henni Tinnu minni og hugsa eg ad hennar magi hafid komid sterkari heim en hannfor af stad. Haldi eg minu striki aetti minn magi einnig ad gera thad.En madur veit aldrei.
Thad otrulega gerdist daginn sem Tinna for ad thad byrjadist ad heyrast ithrumum og eldingum og svo eftir ad Tinna for byrjadi ad rigna. Rignai Kairo. Thad rignir svona 4 sinnum a ari thannig ad allir voru pinu hissathegar thetta for ad gerast. Ekki var thetta mikil rigning en storir dropar.Eitthvad var eg ad tala vid Egyptana hvad thetta vaeri magnad og hressandi, their deildu ekki hrifngingu minni...eina sem their sogdu var acid rain. thannig ad eg dreif mig inn og akvad ad kairo vaeri ekki stadurinn til adopna munninn og gapa upp loftid thegar rignir. Einn sagdi mer thegar spurdurum mengunina her hvort ad their vaeru ad gera eitthvad i henni, sagdi hannja ja alveg helling. Vid: ha! nu hvad? Hann: Vid erum ad baeta vid.
Nu thar sem Tinna min er komin i graan hversdagsleikan i Koben aetla eg ad bidja ykkur ad hugsa til hennar fallega og senda goda strauma a hverju kvoldi kl. 20:00. Ef thid lofid ad passa vel upp a thetta skal eg sja til thess ad hun sendi ykkur thakkir og kannski baeti vid svo sem eins og einu gestabloggi her a siduna.
Thad er nu fra miklu meir ad segja en thad er svo mikid ad gerast i kollinumad eg get ekki dregid thad allt fram. Segjum thetta nog ad sinni.
Janni.

tirsdag den 16. oktober 2007

Tinna

Nú er ég að fara næstu nótt, og seinustu dagar hafa aldeilis verið viðbuðraríkir.
Fyrsta kvöldið var Janus svo hugulsamur að sýna mér video af honum að fara yfir götu, og ég svaf lítið þá nóttina. Ég á stundum erfitt með að fara yfir götu í kaupmannahöfn, og hér eru engin umferðarljós virt, neins staðar. Svo það er bara að taka fyrsta skrefið, og vonast til að þeir hægi á sér. En ég stóð mig eins og hetja, og hef aðlagast borginni með prýði.
Ramadan var að klárast um helgina, og þá fylltust allar götur af fólki. Í fátækari hverfunum ( við villtumst þar inn eitt kvöldið ) var músíkin spiluð svo hátt, að fólk í 100 metra fjarlægð var fyrir eyrnaskemmdum. Án djóks. Þar var líka búið að safna saman leikföngum sem vestrænu þjóðirnar hentu í ruslið fyrir um 80 árum, smyrja þau, og raða þeim meðfram umferðargötu, fyrir börnin að leika sér í.
Unglingunum fannst við hinsvegar aðeins of spennandi, og þegar það var hópur af 15 manns í kringum okkur, náðum við í næsta leigubíl og forðuðum okkur burt.

Hverfið sem við villtumst inn í er kallað islamic kairo. Hverfið fór illa út úr jarðskjálftanum sem kom fyrir um 15 árum, og það var allt önnur veröld að stíga þar inn. Á götunum voru asnar og geitur, inn á milli kaffihúsa, þar sem menn sátu og drukku tyrkneskt kaffi og reyktu vatnspípur. Fimmta hvert hús var moskva, og þær eru mörg hundruð ára, ef ekki nálægt þúsund árunum. Göturnar eru ótrúlega þröngar, en moskurnar eru griðarstaðir, með litlum görðum, hátt til lofts og skreyttum loftum og veggjum.

Eitt kvöldið sátum við á listamannakaffihúsi, og spjölluðum við kollega okkar frá cairo. Það hefði verið erfitt fyrir okkur að finna það án hjálpar, en þar voru sömu litlu borðin, og kollarnir, umræðuefnin voru bara önnur. Þar var m.a. þýskur listamaður sem hafði haldið götu hátíð & skrúðganga fyrir börn í einhverju hverfinu, þar sem allir klæddust búningum, og slógu á trommur. Auk þessa festu þeir asna upp á bíl, sem leiddi skrúðgönguna.

En í dag elti ég janus, í leit hans að listamanni í myndina hans. Það er búið að vera frí hér í nokkra daga, vegna ramadöunnar, og nú er Janus að fara að taka upp myndina sína á laugardaginn. Og svo kveð ég kairó kl 3 í nótt. Nú er bara að fara í arabísku kúrsa, því nú langar mig að þræða miðausturlöndin.

søndag den 14. oktober 2007

Nú er hún Tinna mín búin að vera hjá mér í 3 daga. Það verður að segjast að ég og hún erum bestu ferðafélagar sem til eru. Við erum búin að margfara yfir það og alltaf komust við að sömu niðurstöðu.

Við erum búin að fara á mörg kaffihúsin og drekka arabískt kaffi sem er svo þykkt að skeiðin bókstaflega stendur bein upp úr kaffinu. Við það bætir maður svo ótæpilega af sykri og svo er mikið kanilbragð af því. Einna einkennilegast er að kaffikorgurinn er út í kaffinu svo maður skilur svona gott botnfylli eftir. Myntute hefur einnig verið drukkið svolítið af...það er líka með miklum sykri. Allt þetta sykurát yfir föstumánuðinn er til að bæta fyrir næringarskort. Svo nú skilst okkur að múslimar í lok föstunnar borði mikið saltan mat.

Við erum búin að villast um allt i íslamic Kairó og fengum hjálp frá öldruðum túr guide sem sýndi okkur leiðina út en þó með stoppum í mörgum moskum og svo á mini safninu heima hja honum þar sem við þökkuðum fyrir túrinn með kaupum á öskju fyrir alla skartgripina hennar Tinnu. Einnig keypti ég mér egypskt múmú, sem er kalla-kjóll, eitthvað sem er búið að vera einna heitast hér i tískunni á að giska seinustu 1000 árin. Svo ég held að í raun verið að kaupa mér fasteign frekar en flík. Tinna keypti sér kjól sem hún sýnir við tækifæri.

Gærdeginum var eytt á sundlaugarbakka á Marriott hótelinu. Þetta voru þau rólegheit sem við þörfnuðust. Ef að fólk á leið um Kaíró og kaosin er alveg að fara með mann þá mæli ég með því að maður slökkvi á gemsanum og hvíli fæturnar á sundlaugarbakka í 35 stiga hita. Þó geta eftirköstin verið slæm. Að koma aftur á hótelið sitt sem er vitanlega nokkrum klössum neðar er svona lala.

Ég er búinn að dobbla Tinnu til að taka eitt létt gestablogg hér á síðunni, til að minnka hlutdrægni í frásögn. Endilega látið heyra í ykkur svo hún láti verða af því.
Kveðja Janus...og Tinna( ef hún skrifar)

Hér koma nokkrar nýjar myndir.

http://www.flickr.com/photos/14161356@N03/

onsdag den 10. oktober 2007

Nu er ordin svolitill timi sidan eg skrifadi nokkud. Thad er buid ad vera nog ad gera a hverjum degi svo eitthvad verdur undan ad lata. Annars eru thetta bunir ad vera vidburdarrikir dagar. Seinast laugardag forum vid I sirkus. Mette I bekknum minum er ad fara ad gera mynd um ljonatemjara I sirkus. Svo vid forum nokkur saman langt ut uthverfi kairo. Thad tok 1 tima ad keyra thangad og allann timann vorum vid inni borginn virtist sem svo ad borgin aetti nog eftir. Vid komum tharna ad svaedinu sem sirkustjaldid er. Svaedidi er girt af, svo vid gongum hringinn I leit af innganginum. Thegar vid komum fyrir eitt hornid maeta okkur 50 born. Thau hreinlega tryllast af kaeti vid sja 3 ljoshaerdar og skjannahvitar manneskju. Thau hopast oll I kringum okkur og spyrja what your name? Vid svorum og spyrjum svo til baka. Tau svara oll I einu og oskra. Thetta var svo skritid ad vera umkringdur af bornum oll ad spyrja ad thvi sama og gledjast yfir thvi ad vera spurd. Vid tokum margar myndir svo thaer koma vid taekifaeri inn. Eftir ad hafa slitid okkur fra theim komumst vid ad innganginum ad sirkusnum thar sem ljonatemjarinn tok a moti okkur. 23 ara drengur, sem hafdi vidmot eldri manns sem var fullur af sjalfsoryggi og visku, tho var hann mjog vidkunnalegur og vildi allt fyrir okkur gera. Hann kemur vist ur fraegustu ljonatemjarafjolskylu I Egyptalandi….her eiga their fjolskyldur fyrir allt. Brodir pabba hans var vist drepinn og etinn af ljonum a syningu fyrir ekki svo morgum arum. Hann virtist vita ut I hvad hann vaeri ad fara. Fyrir syningu syndi hann okkur ljonin og hvar thau voru geymd og hvernig thau hofdu thad. Sjalfur sirkusinn var nokkud hefdbundinn, med trudum, linudonsurum, jogglurum og thess hattar. Tho voru nokkud magnadir thrir feitir midaldra kallar a mono hjolum, thad var eiginlega storkostlegt. Lokaatridi kvoldsins var svo ljonatemjarinn. Hann sagdi nu, fyrir syningu, ad thetta vaeri ekki staersta syningin sem hann heldi thvi nu vaerum vid stott I uthverfi Kairo, thar sem folk kynni ekki alveg ad meta ad sja mann inn I buri vopnadan priki og svipu med 25 ljonum og tigrum. Svo hann let ser naegja einungis 7 stykki nuna. Eg nadi eiginlega ekkert ad fylgjast med kunstunum sem hann let ljonin gera, thvi madur var of upptekinn ad hafa ahygjur af sjalfum ser, ef ad ljonin kaemust ut og svo honum. Allt endadi tho vel.
Madur myndi halda ad fa ad taka upp sirkus vaeri ekki mikid mal en sirkusinn er I eigu rikisins og flaekir thad malid all verulega. Thad tharf ad saekja um leyfi og thar fram eftir gotunum. Fyrir thessi leyfi tharf ad borga eitthvad, muta eitthvad og svo ad eiga fjarskyldan fraenda inn I kerfinu. Tho ad kerffid se vel falid I kaos kairo er thad til stadar. Vid vorum a leidinni heim fra sirkusnum og var madur einn ad keyra okkur heim. Eitthvad fara umraedurnar um sirkusinn og ad hann se I rikiseigu yfir I thad hvad launin eru lag( 200 pund a manudi) og hvad geri madur med 25 ljon a sinu framfaeri thegar hvert einasta ljon etur nanast einn asna a dag. Ut fra thessum paelingum fer madurinn ad raeda hvad mikid se ad kerfinu. I sirkus thar sem mikid haefileikafolk vinnur er thad a laegstu mogulegu verkalaunum I gatslitnum buningum. Afram holdum vid ad raeda thetta. Allt I einu ser hann ad ein af stelpunum er ad taka upp ut um gluggann thad sem fyrir augu ber. Snarhaettir hann ad tala og gefur svona orlitid comment a ad nu se hann buinn ad tala og tala og allt tekid upp. Svo heldur hann nu afram en thad var greinilegt ad honum thotti thetta othaegilegt.
Einnig hofum heyrt fra morgum af krokkunum sem eru a kursinum med okkur ad logreglan hafi I einhverju formi skift ser ad thvi hvad thau taki upp. Her tekur madur ekki neitt upp ut a gotu an thess ad fa leyfi fra yfirvoldum fyrst. Einn ur hopnum thager hann I fyrsta sinn tok videokameru I hendurnar, var handtekinn og sat inni I solarhring thangad til ad mamma hans borgadi hann ut. Annar thurfti ad breyti soguthraedi myndar sinnar allverulega vegna thess ad hann hreinlega ottadist um lif sitt, segdi hann thad sem hann vildi. Og eg verd ad segja ad eg trudi honum alveg thegar hann sagdi mer thetta. Hann sagdi fra thessu eins og thetta vaeri heimsins edlilegasti hlutur. Og ut a thad gengur kvikmyndargerdin mikid her I midaustulondum og er thad sem gerir hana spennandi. Their eru snillingar I ad tala undir ros. Their nyta ser thad ad theim seu settar skordur. Tho, verduru vitni ad samtolum Egypta a kaffihusunum geturu verid viss um ad their seu ad tala um politik og fjarmal. Thetta eru samtol sem likjast meir kappraedukeppnum I framhaldsskolunum en rolegu kaffihusaspjalli. Thannig ad ekki veit eg hvar linan liggur, hvad ma segja og hvenaer en liklegast liggur hun I thvi ad thad ma bara ekki komast upp mann, thar af leidandi vilja their ekki ad thad se tekid upp.

En nu er hun Tinna a leid til min I kvold. Ja hun akvad ad taka stuttan tur til Kairo til ad knusa mig adeins. Kemur hun klukkan 1 I nott svo eg get ekki bedid. Get ekki bedid med syna henni borgina, thad litla sem eg hef sed, tho mest af ollu get eg ekki bedid med ad vera med henni roltandi I solinni. Hun verdur hja mer I viku svo vid aetlum ad hafa thad sem best.

Mer finnst alltaf eg geta skrifad miklu meir I hvert sinn en eg held eg missi bara thradinn verdi thetta mikid lengra. Einnig verdure madur ad getad lesid meir en eitt blogg I einum kaffitima.

Og svo eitt kvot sem eg sa I bok sem eg var ad klara ad lesa eftir Kurt Vonnegut en sa thad fyrir morgum arum I veggjakrotsbok sem gefin var ut af uglu utgafu( Folk fekk bokakiljur sendar heim I hverjum manudi og er vist enn ad lesa) :
To be is to do - Sokrates
To do is to be - Sartre
To be to be to be – Sinatra

Janni

torsdag den 4. oktober 2007

matarbodin og meira

I kairo er tippad fyrir allt. Svo thad er venjan svona annan hvern dag thegar eg yfirgef hotelid hef eg skilid eftir svona a milli 10 til 20 pund a rumminu fyrir raestitaeknana. Thad er svona 100 til 200 kr. isl. Nanosin eg. En thad er alveg eitthvad i landi thar sem their laegst launudu fa um thad bil 300 pund a manudi med kannski 5 manna fjolskyldu ad framfleyta. Svo borga allir 10 prosent i skatt. Nyutskrifad folk ur haskolanum faer i byrjunarlaun um thad bil 500 pund og svo tekur thad um tad bil 2 til 3 ar advinna sig upp i 2000 pundin a manudi. Thegar madur tekur saman ad allra odyrasta maltid a veitingastadkosti kannski 15 til 20 pund (thannig haf eg mest bordad, thar er a veitingarstodum) llitur thad ut fyirad vera erfitt eda omogulegt ad framfleyta odrum en sjalfum ser. Er ekki til eitthvad til sem heitir Macdonalds - visitalan? Thar sem gengid er utfra verdi a einni maltid af liklegast bigmac i hverju landiog borin saman. Her kostar maltidin um 18 pund, um 150 kall.isl.
En her bilid stort. Thad er svo mikid af hrikalega riku folki ad madur hefdi ekki truad thvi. Porche jeppar,hummerar i miklu magni og thar fram eftir gotunum. Margir egyptar vilja meina ad thetta bil a milli hinna riku og fataeku eigi storan thatt i thvi ad svona margir a seinustu 10-20 arum hafi snuid ser til islam slikum krafti sem raun ber vitni. Thvi ef lifid nuna, sygur tha hlytur madur ad verdskulda betra i thvi naesta. I samfelagi muslima er mikil naungakaerleikur. Helsta markmid fostumanadarins er ad minna tha sem meira hafa thad sefolk sem minna hafa. Eg hef nu eitthvad talad um manudinn adur. Folk vaknar snemma a morgnana til ad faravinnu, eda skola, hvad thad gerir veit eg ekki en allann daginn fra solinuppras til solseturs neitir folkshvorki votns ne thurrs og ma heldur ekki reykja. Nuna thegar thetta er skrifad er allt vitlaust a ollum veitingastodum og heimilum ad undirbua mat sem a ad vera tilbuinn (klukkan er 17.50) eitthvad i kringum 18. Eitthvad flakkar matartiminn ad sjalfsogdu i takt vid solen er skemmri tima a loft a hverjum degi. Thar semvid vesturlandabuarnir erum ekki alveg komin i takt vid allt her hefur thad komid 3 sinnum fyrir ad mer hefur verid bodid i mat kl 18 thegar eg hef verid ad leita mer ad einhverju ad eta. Eitt skiftid var eg a labbi rett hja hadegisverdarstadnum okkar, sem var lokadur milli 18 og 19, thvi ad starfsfolkid tharf vist lika ad borda, og labba fram hja banka sem er lokadur en i andyrinu erum nokkrir hradbankar. Thar fyrir innannsitja tveir menn, einn oryggisvordur og einn logreglumadur og borda. Their kalla a mig, Eg sny vid og hann endurtekur thad sem hann sagdi og setur svo hendi ad munni. Hann er sem sagt ad bjoda mer i mat i bankanum.Mer fannst thetta svo magnad ad eg gat ekki sagt nei. Svo sit eg med theim i andyrinu og borda 3 rettada maltid med coki. Thegar allt er lokad og eg get hvergi notad peningana mina er eg sa sem minna hef.Thegar eg svo var buinn ad borda a mig gat og ekki sa hogg a vatni, og reyndi ad gefa til kynna med handapati ad eggaeti ekki meir....spyr hann nokkud hastur med mikil vonbrigdi i andlitinu....not good? Med handapatinu gaf eg til kynna ad thetta vaeri svaka gott, eg vaeri saddur en eg gaeti a mig blomum baett. Svo afram borda eg.Tha faerdist mikil ro yfir tha. Vid attum mikil samtol um hvad eg vaeri ad gera i kairo og hvort eg aetti born og konu og hvad eg aetladi ad vera lengi. ...Not good var thad eina sem their gatu sagt a ensku..held eg. Svo ad lokinn maltid var bankinn opnadur fyrir mig og mer hleypt a klosettid til ad thvo a mer lukurnar. Tok mynd af theim, thakkadi mikid vel fyri mig og hvaddi.Thetta hefur synt mer ad nokkra hluti. Vera buinn ad sja til thess ad eg se saddur kl 18, ad ferdast ekki mikid utandyra milli 18 og 19 hafi madur onnur plon og hafi ekki tima til ad stokkva inn i eitt stykkimatarbod, og taka vel til matar sins se manni bodid.Janni

tirsdag den 2. oktober 2007

nyjar myndir

Jæja her eru nyjar myndir....

http://www.flickr.com/photos/14161356@N03/

update

Her ganga hlutirnir sinn vana gang. Eg er farinn ad fa tilfinningu fyrir hversdegi, thar sem madur vaknar og svo er einhver fost rutina sem er komin i gang. Thad er stormarkadur vid hlidina a hlidina a hotelinu, svo thar hef eg keypt mer helstu naudsynjar. Thar a medal vatn, morgunnmat, nytt skritid nammi og thar fram eftir gotunum. Thad er morgunnmatur a hotelinu en thar er allnokkud um djupsteikt falaffel, ommelettur og allskonar sallot sem myndu soma ser i bestu fermingarveislu. Svo til ad halda mer rettu megin vid strikid...hvad svo sem thad er, hef eg keypt mer all bran morgunnkorn og jogurt og svona.Eg kunni vel vid morgunnverdinn fyrstu vikuna en svo fann madur ad hann sat i manni nokkud lengi fram eftir degi.
Stormarkadurinn er nokkud godur og faest allt sem annars stadar faest. Nema alkohol. Tho er thad bara bara yfir fostumanud muslima. Thannig ad ef mig langar i einn nightcap tha er hotelbarinn a toppnum af hotelinu malid. Thar er mikil lifsreynsla ad borda og drekka. Fyrst og fremst er svolitid basl ad panta hvort sem madur er altalandi a arabisku eda ensku...virdist vera. tho hefur madur lent i meiri vandraedum med ad tala enskuna. En va hvad eg nenni ekki ad gera meira mal ur thvi....thetta er svosem allt agaetis matur. Svo eru reglurnar gagnvart muslimum og egyptum og svo utlendingum nokkud oskyr yfir fostumanudinn hvad their mega fa. Vid hofum setid med krokkunum fra libanon og syrlandi, sem eru a kursinum med okkurog thau aetla panta ser bjor. Tha vill thjonninn ekki servera theim hann thvi thau pontudu hann a arabisku og eru thar af leidandi liklegast muslimar. Thau eru tho kristin af uppruna en otruandi. Eg held hreinlega ad barinn og tjonarnir thori ekki ad taka neina sjensa og banni thar af leidandi slikt athaefi.
En reglan segir ad yfir fostumanudinn mega retttruandi muslimar ekki neita matar, drykkja eda reykja fra solaruppras til solarlags.
Og landslog segja ekki megi servera afengi til egypta...bara utlendinga. magnad.
Svo eru prisar mismunandi eftir hvort madur er utlendingur eda Egypti in marga stadi svo sem konserta og annad slikt.
jaja bara sma filingur af stadnum...flottur ekki satt

lørdag den 29. september 2007

nyttnytt

Uff her er heitt. Ja thad er svo heitt ad eg svitna vid tolvuna er eg skrifa thetta. Og eg eg verd ad segja ad thad er ekki mikid til i thvi ad her se thurr hiti, Mer fannst ansi rakt i dag og i gaer. til ad vinna upp a moti thessum hita eru allir med loftreastingar.Thaer eru i gangi dag og nott hja morgum og ekki dregur thad ur hafadanum sem her er. Eg hef nu ekki samvisku i lata hana ganga allan daginn en svona fyrir svefninn og a morgnana og odruhvrou yfir daginn. Einnig er svolitid godur still ad vakna um midja nott og kveikja a henni adeins og kaela sig nidur. en thad lika vaknar madur isskaldur undir lakinu (sem er saenginmanns) og slekkur a henni aftur. Annad vid loftraestingarnar er ad thad rignir ur theim og ona mann er madur labbar uti. eg hef nu viljad telja mer tru um ad thetta se kaelikerfid i theim sem er ad leka en ekki rakinn ur ibudunum....daemi hver sem vilji. Ekki veit eg hvort thetta se adalastaedan fyrir thvi ad folk gangi a gotunni en ekki gangstettunum sem eru til stadar, en gaeti tho verid. Einnig eru gangstettirnar thannig gerdar ad thad er rett undir halfu metir upp a thaer, madur tharf nanast ad stydja sig vid eitthvad aetli madur upp a thaer og einnig er theim haldid nokkud illa vid. En eins og allstadar annarsstadar er thetta mismunandi eftir borgahlutum.Thvi sumstadar er thaer marmaralagdar og sumstadar hreinlega ekki til stadar. Astaedan fyrir thvi ad thaer eru svo haar myndi eg giska a ad vaeri til ad bilarnir vaeru ekki ad leggja upp a thaer. Hingad til hef eg ekki sed baranavagna og thad orsakast liklegast af thvi ad thad er hreinlega ekki haegt. Her er haldid a bornunum sinum og ekkert bull. Thau virdast byrja nokkud snemma ad ganga, thvi enginn nennir ad halda a hlunkum.
I gaer var fridagur her i egypt. Fostudagur er theirra laugardagur. Eg var eitthvad eirdarlaus svo eg nadi ad mana stelpurnar i bekknum til ad koma med mer uti eydimorkina og skoda pyramidana.Eg var buinn ad lesa mer eitthvad til um hvernig atti ad komast thangad. Bara metroid 4 stodvarog svo beint i taxa og alla leid upp ad pyramitunum. Ekkert mal thvi ad pyramitarnir eru alveg vid baejarmorkin. thad aetti nu ad segja manni ad eitthvad er rotid vid thetta allt saman.Vid erum a lestarstodinni og litum orugglega pinu tynd ut. Ad okkur vindur ser madur og segist vita hvernig se best ad komast thangad(Thad sast nu langarleidir hvert vid vorum ad fara) vid erum mjog skeptiskt a thetta allt saman. Hann segist vera kennari vid haskolann i Kairo og vilji bara hjalpa og ekkert pening eda neitt. Vid faerum okkur afsidis og raedum okkar mal. Vid akvedum bara lata slag standa, thad er liklegast verid ad hossla okkur en tha laerum vid bara af thvi. Vid forum med honum og upp svona mini buss og svo annann mini buss. Thessir minibussar eru ferdamati folks sem tekur ekki taxa, straeto eda annann ferda mata. kosta bara 50 aura og folk hangir utan a thessu eins og hver annar farangur. Vid fengum tho ad sitja inni. Okkur var nu farid ad gruna ymislegt en vorum til i sma aevintyri. Hann stakk upp a thvi ad vid faerum a hestum eda ulfoldum upp ad pyramytunum og sphinxinum...thetta vaeri nu svo hrikalega langt ad labba. Vid komum ad hesthusunum og thar eru gefin loford ad ekkert verdi hosslad og bara ein greidsla. vid borgum einhver 200 egypskt pund og leggjum af stad a hestum og stelpurnar aetludu nu ekki ad thora thvi. Svo er allann timann verid ad reyna troda upp a okkur gosdrykkjum og allskonar minjagripum...sem madur segjir nei eftir getu. kringum pyramitana er buid ad byggja girdingu sem er heldur ekki miklu. Ekki forum vid nu nalaegt pyramitunum en thad er vist markmidid i turum sem thessum ad madur nai ollum 9 stykkjunum saman a einni mynd og tha helst med hendina ofan a toppnum a einum pyramytunum svo madur liti ut miklu staerri....classic. Eg fekk frekar viljugan hest sem var alltaf ad hlaupa undan mer og var naestum dottinn nokkrum sinnum thegar hann kvelftist. Svo a einu ustynisplassinu thegar eg var stadinn af minum hesti og hellingur af turistum var i kring tryllstust einhverjir hestar og ulfaldar. Guidarnir lentu i slag vid hvorn annann og vid hvors annars hesta og gryttu steinum og eg veit ekki hvad. Hesturinn minn trylltist en sem betur fer var eg ekki a honum svo betur for en a horfdist. tha kom guidinn okkar til okkar og sagdi okkur ad nu thyrftum vid ad drifa okkur. Vid letum hann ekki segja okkur thad oftar og af stad heim med orlitlu stoppi vid sphinxinn thar sem hann aetladi ad fa mig til ad taka dancing like an egyptian dansinn...eg helt nu sidur, og vid drifum okkur heim i staldid og heim svo i taxa og fannst vid hafa komist heim vid nokkud godan leik. En tho nokkud svikin. Vid vissum af thessu ollu en einhvernveginn lendir madur samt i svona. En svaedid sjalft er ekki fallegt a ad lita, rusl ut um allt og engin virding fyrir thessum verdmaetum...eda minnsta kosti mjog litil. Allt thetta var tho mikil upplifun madur gafadri a eftir.
Nuna fara productionir theirra 6 fra midaustulondum ad klarast, bara ein eftir og tha tekurvid 4 daga klippivinna. Fyrst tha hefur madur vinnuna vid sina eign mynd og eru thvi adeins rolegri timar framundan og 3 daga fri eftir ad fostumanudur theirra lykur. Okkur langar svakalega ad fara og synda einhverstadar i sjonum...en sjum til hvad verdur ur.
Segjum thetta nog ad sinni. Janni

onsdag den 26. september 2007

Adeins fyrir svefninn

Svona skrifar madur Klukkan er ordin margt a arabisku.
.آع ثق ،نمعننشى خقيهى ةشقلف
Ja hun er rodin margt og eg enn ad vinna og tharf ad vakna ansi snemma a morgunn. Thad er production dagur hja mer og tha tharf madur ad hafa sig allan vid svo allt timaplan haldist…serstaklega her in Egypt…..her kemur timinn en hann fer ekki eins og hann gerir a Islandi og I Danmorku.
Eg var adeins ad spa I muninum a hvernig folk hefur thad her og svo I okkar heimalandi. Thegar eg kem ut af hotelinu er aldagomul kona sitjandi a gotunni med hendina utretta og bidur sma aur til ad kaupa ser ad eta. Thegar eg fer a vestraena kaffihusid rett hja vinnunni sem er vid hlidana a mcdonalds er ung modir med 2 litla krakka ad bidja um pening fyrir mat og selur munnthurkur til ad gefa eithvad I stadinn fyrir aurinn. Og allstadar sem madur fer er folk ad betla og haldandi a bornum sinum a gotunni. Sofandi I fangi foreldra sinna I midri mengunn og umferd. Mer hefur med miklum agaetum tekist ad humma thetta fram af mer hingad til en eg verd ad segja eins og er ad eg held ad mer takist thad ekki mikid lengur. Svo I morgunn tok eg sma aura I rassvasann til ad getad rett ut odru hvoru. Eg held ad eg se ekki ad gera mer neinar grillur ad mer takist ad senda born konunnar vid kaffihusid I gegnum haskola thannig ad liklegast er eg bara frida mina eigin samvisku. Hun verdur thar orugglega a morgunn og longu eftir ad eg fer.
janni

her kemur linkurinn a myndir

meiri myndir


Ytid a meiri myndir og tha aetti eitthvad ad gerast

Vonandi sma fleirri myndir

hallo...
nu hefuru thad tekist, eg hef stofnad flickr reikning. Thar geitidi farid inn og skodad myndir fra Kairo.
http://www.flickr.com/photos/14161356@N03/
kikid
Janni i kairo

mandag den 24. september 2007

søndag den 23. september 2007

nyr dagur

Her er alltaf eitthva ad gerast. Nu er ad fara ad lida fyrstu productioninni. sem sagt annar af thiem sem eg er ad vinna med er ad fara ad gera myndina sina a morgunn svo allt a fullu vid undirbuning. Su mynd fjallar um svona prikdans eins fjallad var um i seinasta bloggi og viti menn kallinn buinn ad gera sina heimavinnu og veit alveg um hvad malid snyst...svona nokkurn veginn
I gaer forum vid danski hopurinn allur og sa egypski i picknik upp a haedina inni midri borg, thangad sem fyrir 15 arum fluttu a einu bretti 150.000 manns...eg sa nu ekki mun thannig sed.En natturulega alveg magnad utsyni. Vid atum og drukkum te og reyktum vatnspipur...thid megid nu ekki halda ad egyptarir setji eitthvert fjollet tobac i thetta....bara saklaust eplatobak. Allt thetta er svakalega huggulegt og thad goda og stundum svolitid erfida er ad theim lyggur ekkert a. Thannig svona saklaust picknik getur varad fleirri tima. Egyptarnir virdast vera svo social manneskur ad their virdast ekki thrifast nema i felagi vid fjolda. Kannski er thetta nu bara svoleidis her i borginni en hun hreinlega krefst thess af manni ad madur tali vid hundrudi manna a hverjum dagi og gefi stefnuljos med hendinni.


Eg for adeins i baeinn adann eda a eina af versunargotunum og thar sem eg var ad skoda fot a mig. Eg tok nefnileg bara einar buxur med mer. Aetladi mer natturlulega strax ad kaupa mer buxur en mer herur ekki alveg unnist timi til thess auk thess sem their eru svolitid i odrum stil en kallinn. Their eru ekkert i gallabuxunm med teygjuefninu.
Svo kem eg nidur a Semat, framleidslufyrirtaekid sem vid erum ad vinna med, og thar er matur pakkadur inn a bordum og allir bara bida eftir ad klukkan slai 6 svo their geti bordad morgunnmatinn sinn. ramadan er svakaleg. Their spyrja mig hvort eg vilji borda med theim. eg segi jo...eg vaeri alveg til i thad en fannst thetta ekki mikill matur. Thad skifti tha engu mali. Their eru svo hrikalega gestrisnir ad thratt fyrir ad vera ekkert bunir ad borda ne drekka i 12 tima bjoda their med ser af mat sem mer fannst ekki mjog mikill.
Eg verd ad segja ad eg var barasta hraerdur. Og svona hlutir gerast a hverjum degi.

lørdag den 22. september 2007

fyrsta almennilega kairo faerslan.

whuuuuaaaa kario er mognud
Theta hlytur ad vera alveg klikkadasti stadur sem eg hef komid til. Her gengur allt mjog haegt fyrir sig eda mjog hratt fyrir sig. Bara ad taka taxa um gotur Kairo ferdarinnar virdi. Her skiptir Rauda ljosid ekki ollu mali og graena thar af leidandi ekki heldur. Einnig er ekkert akvedid gjaldi taxanna....madur rettir 20 egypskt pund eftir turinn og svo gefur hann til baka svona eins honum finnst passa eda madur akvedur sjalfur hvad mikid madur vill borga. Bara thad ad bleiknefji eins og eg lati sja sig ut a gotu thydir natturlega ad mig vanti taxa jafnvel tho ad eg se a leid inn a hotelid og standi fyrir utan thad.
Her virdist einnig ad se haegt ad fa allt hvenaer sem er....en framleidslufyrirtaekid sem vid erum ad vinna med a samt i miklu basli a redda thrifotum fyrir kamerur og thar fram eftir gotunum. Hefur farid svolitil orka hja kennaranum okkar danska fa slik atridi til a virka og folk komi ekki mikid meir en 30 min. of seint. En eina radid sem egyptarnir gefa okkur er barasta go with the flow....the egyptina flow...Thad verdur mjog intresant ad sja hvernig verdur ad gera kvikmynd i thessu umhverfi.
En burt sed fra einhverju slikum atridum tha eru allir hrikalega vinalegir og vilja allt fyrir manna gera. Hotelid er fint og vid erum med svaka finan veitingastad slash bar upp thaki thar sem madur hef utsyni eins og mengunin leyfir.
I gaer attum vi fridag og for hann bara i ad slappa af og reyna adlagast thessum lika svakalega hita. Her er ramadan i gangi og thad thydir ad their eta ekkert medan solin er uppi. their eta gridarlega um morguninn, sem gerir tha svolitid sloj, og mega svo ekkert borda reykja ne drekka fyrr en solin er gengin nidur um 6 leytid. Thad gerir um thad bil 12 timar a matar og drykkjar. Thannig ad um tvo leytid um daginn, thegar allt er ad loka, eru allir ordnir nokkud kvekktir og urillir. Tha bruna allir heim, umferdarstiflur myndast like you never see em. Svo giska eg a ad their sofi til svona 4 og fara tha ad gera mat og borda svo kl 18. Og tha hefst gamanid. Their vaka eins lengi og their geta til borda sem mest og safna forda. Svo eru heilu fj0lskyldurnar, foreldar med 4 born og ommur og afar og allir bara uti a gotu langt fram a nott og a morkudunum. Vid forum einmitt a einn slikan i gaer thar sem vid drukkum te i godu yfirlaeti a risastorum markadi. Risastor er bara ekki nogu stort lysingarord yfir thad. Vid islendingar komum held eg bara fra minnsta landi i heimi...vid eigum bara ekkert i menningu okkar til ad lysa sliku.
En adur vid forum a markadinn forum vid i magnadann gard thar sem haldid vara upp a helgasta dag vikunnar, fostudaginn...theirra sunnudag. Thar var kallinn tekinn upp svid, fyrir framan fleirri hundrad manns(skritid eins og eg fell vel inn var eg valinn) latinn taka thatt i skylmingar atridi og hinum thjodlega prikadansi. Allt thetta nadist a band svo kannski vid taekifaeri kemst thetta a netid...

Eins og thid sjaid gerist margt a hverjum degi. Meir ad segja i kvold er picknik upp haed i midri borg. Thar var litill baer thangad til fyrir ca. 15 arum ad mikill jardskjalfti reid yfir Egyptaland og a einu bretti voru 150.000 manns fluttir thangad. natturlega bara brotabrot af hinum 21.000.000 sem bua her, og 6.000.000 sem koma bara hverjum degi inn i borg til ad vinna.

jaeja nog ad sinni
janni

mandag den 17. september 2007

ný mynd

Annar ferðafélagi minn ( sú ljóshærða, hún Mette) og einn nýneminn úr skólanum. Ég helt uppi ættarhefðinni og keypti litaða brjóstsykra og munnur þeirra varð blár. Danir eru greinilega ekki vanir því að vera strýtt....Kom alveg aftan að þeim að ég gerði slíkt.

søndag den 16. september 2007

Prufan


Jú nú er ég að prufa dótið